Próflesturinn hefur umbylt sólarhringnum en að sjálfsögðu gefst tími til að horfa á valda leiki af úrslitakeppninni í NBA. Hér koma nokkrir punktar:
- Ég spáði Suns áfram gegn Spurs. Þvílíkur blunder. Ég hélt að Shaq myndi halda Duncan niðri og það myndi stífla sóknarleik San Antonio. Og fyrsti leikurinn var up for grabs. En þá gerði Pop breytingar og 90% af sóknum þeirra voru vagg og velta (til heiðurs Svala Björgvins). Ekki bara einu sinni per sókn heldur þangað til vörnin gaf opið skot. Með Shaq, Stoudamire og Nash sem burðarstólpa í vörninni þá er óumflýjanlegt að gefa opið skot í hverri einustu sókn. Eða að D’antoni myndi koma með einhver ný look í vörninni. Ég verð mjög hissa ef þessi sería fer í fimm leiki, hvað þá lengra.
- Ef ég væri stuðningsmaður Denver þá væru ekki mörg hár eftir á höfðinu. Hvernig getur þjálfari leyft Smith, Melo og AI að fá tæknivillur á krítískum augnablikum? Agaleysi og eiginhagsmunasemi eru tvö orð sem eru bannorð í úrslitakeppninni. Vona að Lakers sópi þeim í burtu.
- Houston eru seigir. Verst að þeir lentu gegn Utah. Ef það er einhver galli á vörn Houston þá er það leikstjórnandinn. Deron leikur sér að Alston og skapar opin skot. Houston matchar vel gegn liðum eins og Lakers þar sem Battier getur hægt eitthvað á Kobe og buffin, Mutumbo, Landry og Hayes, eiga í fullu tré við Gasol.
- Cleveland er leiðinlegasta lið deildarinnar. Boobie Gibson? Anderson Varejo? Ben Wallace? Wally Schzkdoidierbiak? Hvers konar lið er þetta eiginlega? Að horfa á LeBron bíða í 10 sekúndur, skoða vörnina og keyra í gegn er áhrifaríkt og allt það. En mikið djöfulli er það leiðinlegt á að horfa.
- Prik til Sixers og Hawks. Gefa sig allan fram og uppskera samkvæmt því. Denver og Detroit ættu að geta lært eitthvað af þeim. Og þó.
- Er Orlando eitthvað betri en Cleveland? Fjórir fyrir utan þriggja, hent inn á Howard og Tyrkinn með gegnumbrot. Þá vil ég frekar vagg og veltu hjá Stockton og Malone.
- Dallas er með ágætt lið. En til þess að vinna úrslitakeppnina þá þurfa þeir að vinna 16 leiki. Hvar er presensið inn í teig? Ef stökkskotin hjá Dirk og Terry eru ekki on, hvað gera þeir þá? Cuban vissi þetta og gerði breytingar. Fékk til sín Kidd. En það breytti litlu því hann virkar best í hraðupphlaupunum og það er ekki leikur Dallas. Í staðinn misstu þeir tvo bestu varnarmennina sína í Diop og Harris. Síðast þegar ég vissi þá er það vörnin sem vinnur titlana. Detroit, Chicago, Houston, Spurs, Lakers, Spurs, Pistons, Spurs, Miami, Spurs. Öll þessi lið höfðu varnir sem hræddu andstæðingana.
- Og þess vegna eiga bara fjögur lið möguleika á titlinum. Lakers, Boston, Spurs og Detroit. Lakers eru á þessum lista vegna Phil Jackson. Öll lið undir hans stjórn hafa átt eitt sameiginlegt; að taka stjórnina. Þegar mikið liggur við þá er það hann sem kemur með adjustments og lætur andstæðingana reyna finna svör. Ekki öfugt. Vörnin hjá þeim virðist shaky á pappírnum en þeir eru snjallir. Taka styrkleikana af andstæðingunum og láta þeim veikleikana eftir. Melo og AI ættu að eiga auðvelt með Fisher og Radman en Lakers vita nákvæmlega hvar sterku og veiku punktarnir liggja. Herra Pringles ætti að taka eftir, nema hvað hann er svo upptekinn af sókninni að honum er alveg sama þótt Tony Parker skori yfir fjörtíu stig, nánast öll með stökkskotum á sama stað.
Nóg í bili, aftur að lærdómnum
maí 13, 2008 klukkan 6:35 pm
fardu nú ad skrifa um eitthvad sem vid hvíta fólkid getum haft gaman af