Ég get nú ekki séð það að það sé fjárhættuspil að spila bridge. Menn þurfa nú að borga þátttökugjald til þess að taka þátt í firmamóti í fótbolta…Kannski spil þar sem tilviljun ein ræður hvernig fer og þetta er svona spennuleikur sem að ræðst ekki að getu.
Þetta sagði Jón H.B. Snorrason í Kastljósi kvöldsins. Önnur eins vankunnátta er vandfundin. Látum liggja milli hluta hvort póker sé ólöglegur eður ei. Hins vegar er alveg ljóst að í 100 manna pókermóti þá eiga ekki allir sama möguleika á sigri.