-
Á Íslandi er föst krónutala lögð á bensín.
-
Svo kemur vsk. ofan á allt klabbið.
-
Þið fáið vaskinn endurgreiddann.
-
Eftir stendur föst krónutöluálagning ríkissins.
Ég velti því oft fyrir mér hvort það sé svínaskítur í heilabúinu á þessum mótmælendum. Þess vegna ætla ég að stafa ofan þá einfalt reikningsdæmi.
Ef bensín kostar 50 krónur fyrir álagningu ríkissins, krónutöluálagningin er 50 krónur og virðisaukaskatturinn er 24,5 prósent þá er álagning ríkissins 100% á atvinnubílstjóra. Af hverju 100%? Jú, þið fáið vaskinn endurgreiddann.
Segjum sem svo að bensínið fyrir álagningu fari upp í 100 krónur. Krónutöluhækkunin er áfram 50 krónur og vaskurinn er áfram 24,5%. Álagning ríkissins hefur sem sagt lækkað niður í 50%. Af hverju 50%? Jú, þið fáið vaskinn endurgreiddann.
Álagning ríkissins á atvinnubílstjóra lækkar því óhjákvæmlega eftir því sem bensínverðið hækkar því ríkisstjórnin hefur haft sömu krónutöluálagninguna frá 2002. Bensínið hefur jú hækkað í verði en þá verðið þið bara að hækka verðið á ykkar þjónustu í samræmi. Auðvitað sitjið þið í súpunni í þeim verkum sem þið eruð búnir að bjóða í en þið vissuð vel áhættuna á þessu þegar þið gerðust atvinnubílstjórar (öllu heldur hefðuð átt að vita en heilabúið virðist eitthvað takmarkað). En í staðinn fyrir að berjast í bökkum og reyna ná endum saman þá eyðið þið frekar tímanum ykkar í mótmæli.
Einstaklingum vorkenni ég heldur ekki neitt þó ég eigi bíl og finn vel fyrir hækkun á eldsneytisverði. Bensín er takmörkuð auðlind og afleiðingar af notkun þess mengar umhverfið. Þess vegna veit ég ekki hvort eigi að gráta eða hlæja þegar blessaðir mótmælendurnir eru að teppa vegina og afsaka sig með því að þetta sé í þágu almennings. Segið manneskjunni á Reykjanesbraut það sem missir af tengifluginu. Eða fólkinu á Hrafnistu sem bíður eftir lækninum sínum. Eftir því sem tíminn líður þá aukast líkurnar á að sjúkrabíll sé fastur í röðinni. Kannski óvitarnir hætti þessum skrípaleik eftir að hendur þeirra verði blóði drifnar.
Að lokum, hvers vegna í andskotanum er lögreglan að bjóða lýðnum í nefið og tjatta við þá eins og mestu mátar? Ef ég brýt glugga í húsi og lýsi því yfir að ég sé að mótmæla of litlum fjárhæðum sem fer í löggæslu í landinu, yrði ég stikkfrí? Nei, handtaka á ribbaldana ef heimild er til. Ef ekki þá skal beita sektum.
apríl 3, 2008 klukkan 2:39 pm
Ég elska svona málefnaleg innlegg í umræðuna sem halda henni á siðuðu og háu plani. Ef allir væru bara jafn málefnalegir og þú, þá myndi eflaust ekki þurfa að standa í neinum deildum í þjóðfélaginu.
(Góðir punktar samt þó að framsetningin sé á mis).
apríl 3, 2008 klukkan 5:00 pm
Satt er að málefnalegheitin eru ekki mikil. Hins vegar hafa atvinnubílstjórar (þ.e. þeir sem mótmæla) ekki svarað neinum mótrökum, sama hvernig þau eru framsett. Þangað til það gerist þá er illmögulegt að halda umræðunni á sæmilegu leveli.
apríl 5, 2008 klukkan 2:51 am
þessir bílstjórar áttu að ráða einhvern til að tala fyrir sig því að þeir hreinlega hafa ekki efni á að tala af sér svona sjálfir í hvert skipti sem þeir tala í útvarpi