Vítaspyrnur eru að drepa knattspyrnuna. Dómarar þora ekki að dæma á peysutog í hornspyrnum og hika þegar leikmanni er brugðið í vítateignum. Sóknarmenn fá brauðfætur um leið og í teiginn er komið. Vítaspyrnan er of afgerandi refsing sem gefur af sér mark í 3/4 tilvika. Óbein aukaspyrna myndi leysa vandann. Dómarar myndu þá ekki hika við að dæma og sóknarmenn myndu frekar standa í fæturna.

febrúar 28, 2008 klukkan 11:09 pm
rautt spjald ef að einhver annar en fyrirliðar tala við dómara, og rautt ef fyrirliðinn gerir það ekki eins og heilvita maður. Málið dautt.
reyndar myndu sum lið ekki spila nema með tvo þrjá leikmenn en nóg af mörkum í staðinn