Ég tel mig ekki búa yfir miklum fordómum. Hins vegar er ég búinn að ákveða að Danir séu iðjuleysingjar. Nokkur atriði því til stuðnings:
- Frítt í alla skóla, sem er kannski ekki svo slæmt. Verra er að fólk fær greitt fyrir að vera í skóla.
- Danir fara á lífeyri 63 ára. Þeim finnst það meira segja of hátt því fyrir nokkrum árum var aldurinn hækkaður um þrjú ár. Þetta segir manni að þeir sem læra til prófessors eru á launum til þrítugs í skóla, vinna í rétt rúmlega 30 ár og fara svo á lífeyri.
- Fjórði hver Dani yfir þrítugt greiðir ekki í lífeyrissjóði eða sparar fyrir efri árin
- Auðvelt er að lifa á kerfinu. Atvinnuleysisbætur eru drjúgar og alls konar athvörf eru til. Hvert fara Íslendingar sem nenna engu nema reykja hass?
- Hver man ekki eftir aðgerðum iðjuleysingjanna þegar Ungdómshúsið var rifið? Eigendur hússins vildu rífa það niður, iðjuleysingjarnir brutu og brömluðu og heimtuðu nýja byggingu. Eftir að hafa eyðilagt eignir fyrir mörg hundruð milljónir heimtuðu þeir nýtt athvarf.
- Eigum við eitthvað að tala um Kristjaníu?
- Íslendingar nenna að vinna. Það hefur sýnt sig í Danmörku og er öfund Dana út í velgengni Íslendinga yfirgengileg.
Ástæðan fyrir þessum pirringsskrifum er skopteikningamálið. Ekki ætla ég að verja blessuðu múslimana sem mega vissulega mótmæla þegar þeir eru móðgaðir en líflátshótanir og eignaspjöll eru að sjálfsögðu út í hött. Þegar mestu látunum hafði linnt og danskar mjólkurvörur voru aftur farin að seljast í Arabalöndunum þá ákveða einhverjir bjöllusauðir í Danmörku að endurbirta skopmyndirnar, af prinsippástæðum.
Ég held að (sumir) Danir geri sér ekki grein fyrir að aðgerðum fylgja afleiðingar. Prinsipp eður ei, er það ómaksins virði öll þessi mótmæli og atvinnumissir vegna minnkandi sölu afurða?
Ligeglad þýðir að vera skítsama um hlutina og Danir eru það vissulega. Gæti ekki verið að allt danska kerfið, sem ýtir undir að nærast á kerfinu og að það reddi því sem aflaga fer, hjálpi ekki fólki að taka svona fáránlegar ákvarðanir?
Auðvitað eru þetta fordómar en fréttaflutningur síðustu missera hefur ekki gert manni auðveldara fyrir að fá meira álit á nágrönnum okkar blessuðum.
febrúar 28, 2008 klukkan 11:08 pm
don´t get me started