Nýtum gamla bæinn

By Brynjar

Gamli bærinn á Blönduósi er auðlind sem ber að nýta. Hér áður fyrr iðaði hann af lífi og innihélt margs kyns starfsemi. Í staðinn fyrir að geyma söguna og myndir upp í hillum, hvers vegna ekki að þruma þessu upp á skilti fyrir framan húsin? Áhugamenn um sögu gætu sýnt þessu áhuga og myndi því skapa smá aðdráttarafl. Burtfluttir Blönduósingar myndu áreiðanlega stoppa frekar á staðnum. Yngri Blönduósingar myndu fræðast um heimastaðinn sinn. Varla mjög kostnaðarsamt. Verk fyrir menningar- og fegrunarnefnd Blönduósbæjar að athuga.

Ein ummæli to “Nýtum gamla bæinn”

  1. Egill segir:

    ekki viss um að fegrunarnefnd yrði hrifin af þessari hugmynd, nema kannski í viku í kringum húnavökuna.
    en allar hugmyndir eru betri en engar hugmyndir sem er venjan hér á dósinni

Skildu eftir svar