“[Ég] mun aldrei, aldrei geta kosið neitt það fyrirbæri sem ráðherrann [Davíð Oddsson] stendur fyrir… [Davíð] er rekinn áfram af blindri heift en [Halldór Ásgrímsson] af hamslausri þrá fyrir að verða sjálfur forsætisráðherra… Þeir kunna að beita ofeldi án þess að hægt sé að sanna það… Þeir ætla að traðka í hermannaklossum sínum í rósagarði íslenskra fjölmiðla… Við þurfum marga góða, án Davíðs. Veltum borðum valdníðinganna.”
Þessi orð féllu hjá Reyni Traustasyni á útifundi á vegum Norðurljósa þegar fárið í kringum fjölmiðlafrumvarpið stendur sem hæst. Held að það sé ágætt að hafa þessa ræðu hans í huga þegar hann skrifar samsæriskenningar um sjálfstæðisflokkinn og spyrja sig hvort hann sé að skrifa eftir einhverjum ábyrgum heimildum eða búa til strámenn líkt og kollegi hans á Morgunblaðinu. Einnig er hollt að hugsa til þess hvort maður sem hefur látið jafn þung orð falla um stjórnmálaleiðtoga sé á annað borð hæfur til þess að skrifa um pólitík svo mark sé takandi á.
Nota bene, ég kaus VG í fyrra og hef því engra hagsmuna að gæta.