Nýr starfsvettvangur

By Brynjar

Ég hef verið í þónokkrum vandræðum með svefn síðustu vikur og hefur það jafnvel verið svo slæmt að komið hefur fyrir að ég hef farið upp í rúm um eitt og sofnað um sjö. Svona verður þetta þegar skólinn er aðeins þrjá daga vikunnar.

Ég var að sjálfsögðu með patentlausn. Jú, ég hafði samband við Morgunblaðið á Akureyri og réð mig í útburð.

Fyrsti dagurinn var í dag og vaknaði ég þrjár mínútur yfir sex.

Einn galli var á gjöf Njarðar. Þetta var fyrsti dagurinn þar sem Blaðinu var dreift í öll hús ásamt auðvitað Mogganum til áskrifenda.

Ég var kominn á stjá um hálf sjö og byrjaði að bera út blöðungana í hvert hús. Fjári var það tímafrekt. Þetta tók mig næstum tvo tíma út af helvítis Blaðinu.

Sótillur settist ég niður og reiknaði út hvernig manni er borgað.

Heildarlaunin eru eitthvað á milli 50 og 60 þúsund – eftir því hver þyngd Moggans er, aukablöð og annað slíkt. Þetta voru milli 110 og 120 lúgur sem ég bar í og þar af voru rúmlega 40 Moggar. Sem sagt, ég var að bera aukalega út í 70-80 lúgur. Samt sem áður fær maður bara 7-8 þúsund króna launahækkun per mánuð.

Á mannamáli – það er verið að taka blaðburðarfólk í rassgatið!

Ég fór niður á skrifstofu Morgunblaðsins og benti yfirmanninum á þessa þvælu, skildi töskurnar eftir, sagðist vera hættur og ákvað að gefa vinnuframlag mitt til Árvakurs.

Þessi lífsreynsla gefur mér þó allavega aukalínu í ferilskránni:

Morgunblaðið – blaðútburður
1. mars 2007 – 1. mars 2007

5 svör to “Nýr starfsvettvangur”

  1. Hlynur Már segir:

    flottur makkarinn

  2. Egill segir:

    þú ert sett for læf með svona trekk rekkord :)

  3. Teitur segir:

    Ekki bjóstu við að þetta væri vel borgað? Það er ástæða fyrir því að það eru aðallega börn og þroskaheftir sem eru í þessu. ;)

  4. Baldur segir:

    Ég myndi nú allavega ekki feitletra þessa línu á ferilsrkánni.

  5. JSJ segir:

    Fyndið…

Skildu eftir svar